Bjarni Þorgeir Bjarnason
„Tímar hjá Helgu er fjölbreyttir og hef ég aldrei upplifað tvo nákvæmlega eins daga hjá henni. Hún veit hvað þú getur og býst við nákvæmlega því. Ég hef lært rétta líkamsbeitingu í lyftingum, fjölbreyttar æfingar og að njóta þess að æfa undir hennar leiðsögn.“
Lilja Gísladóttir
„Tímarnir með Helgu voru alltaf skemmtilegir og vel upp strúktúrðir. Ég leitaði til hennar til að fá hvatningu til að komast aftur í reglulega hreyfingu og vinna í styrk – og það tókst! Ég lærði mikið, bætti þyngdir og er nú á leið í CrossFit æfingar með sjálfstraustið í botni. Ég mæli hiklaust með einkaþjálfun hjá henni.“
Björn Páll Fálki Valsson
„Fagleg og skemmtileg þjálfun! Æfingarnar voru krefjandi, vel skipulagðar og skiluðu mér árangri. Helga er frábær þjálfari sem ég mæli hiklaust með.“
Karen Rúnarsdóttir
„Helga er frábær þjálfari. Æfingarnar hjá henni eru fjölbreyttar og þannig byggðar upp að ég fann fljótt mun á mér í styrk og úthaldi. Svo er bónus hvað hún er hress og skemmtileg. Það er aldrei leiðinlegt á æfingu með Helgu.“
Inga Lára Magnúsdóttir
„Ég var mjög ánægð með einkaþjálfunina hjá Helgu. Hún var einstaklega liðleg, hlustaði á þarfir mínar og aðlagaði æfingarnar eftir því. Tímarnir voru fjölbreyttir, skemmtilegir og alltaf hvetjandi – það var auðvelt að halda áhuganum og mæta með gleði. Ég fann fljótt fyrir framförum bæði í styrk og úthaldi og það var greinilegt að þjálfunin var vel hugsuð og útpæld.
Ég mæli eindregið með Helgu!“
Svanhvít Tryggvadóttir
„Helga var fullkominn einkaþjálfari fyrir mig. Hún bjó til geggjað gott æfingarplan svo ég hlakkaði til að mæta á æfingar og svo hef ég haldið áfram að nota planið eftir að einkaþjálfun lauk. Ég fann mikinn mun á styrk og úthaldi og lærði helling eftir 8 vikur. Svo skemmir ekki fyrir hvað hún er skemmtileg!“
Guðrún Olsen
„Ég hef verið hjá Helgu í rúm tvö ár og það hefur verið algjörlega frábært. Hún er fagleg, hvetjandi og með einstaka hæfileika til að aðlaga æfingar að mínum markmiðum og getu. Ég hef ekki bara náð betri árangri en ég bjóst við, heldur líka fundið meiri gleði í hreyfingu.“
Stefanía Kristín
„Ég hef verið af og á hjá Helgu í einkaþjálfun síðan 2023. Hún hefur ótrúlega góða nærveru og er þarna fyrir þig! Þrátt fyrir líkamlega kvilla, meiðsli, meðgöngu eða annað sem var í gangi hjá mér nær hún alltaf að mæta manni, aðlaga æfingarnar og hvetja mann áfram til að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Helga er fyrir alla! Hvort sem þú ert að byrja eða hefur verið í mörg ár í líkamsrækt getur þú leitað til Helgu.“
Guðmundur Elías Sigurðsson
„Ég er sjómaður og hef verið hjá frábærum einkaþjálfara, Helgu, sem hefur hjálpað mér að ná miklum árangri. Æfingarnar sem hún setur upp eru fjölbreyttar, krefjandi og sniðnar að mínum þörfum og vinnutíma. Ég hef náð mörgum markmiðum og frábærum árangri í lyftingum og finn mikinn mun á styrk, úthaldi og líðan. Mæli eindregið með Helgu sem einkaþjálfara!“
Steinunn Steinþórsdóttir
„Ég leitaði til Helgu með mjög ákveðin og krefjandi markmið. Hún setti upp sérhæft kraftlyftingaprógramm fyrir mig sem hún endurreiknaði og bætti viku fyrir viku. Það var eins og hún vissi betur en ég hvað ég gæti og ætti að ráða við! Þvílíka hvatningin og trúin sem býr í einum þjálfara! Ég fór langt fram úr eigin væntingum og náði öllum mínum markmiðum og meira til. Ef þú vilt ná alvöru árangri að þá er Helga snillingur.. fyrir utan auðvitað hvað hún er skemmtileg og flott fyrirmynd 💓“
Helga Kristinsdóttir
„Ég setti mér það markmið að bæta styrk og þol – og með Helgu náði ég þeim markmiðum mun fyrr en ég hafði búist við. Æfingarnar eru vel skipulagðar, fjölbreyttar og með skýrum stíganda sem heldur mér alltaf á tánum. Helga er einstaklega jákvæð og hvetjandi, og gerir hverja æfingu bæði áhrifaríka og virkilega skemmtilega. Ég mæli eindregið með henni!“
Ólöf Erla
„Eftir veikindin leitaði ég til Helgu til að hjálpa mér að byggja mig upp og finna meiri orku. Hún er ótrúleg hvatning fyrir mig og fyrirmynd – alltaf til staðar með stuðning og jákvæðni sem gefur manni kraft og trú á eigin getu. Með hennar leiðsögn fann ég þjálfun sem ég nýti mér og hlakka til að mæta í. Það hefur verið dýrmætt að upplifa árangur og sjá framfarir. Ég er innilega þakklát að hafa Helgu sem þjálfara.“
Eva María Guðmundsdóttir
„Eftir mörg ár af kyrrsetu fór ég í einkaþjálfun hjá Helgu og eftir tvo mánuði var ég komin í miklu betra form en ég hafði gert mér vonir um. Hún er með góða nærveru, hress og skemmtileg, fagleg, hvetur mann áfram og gefur ekkert eftir. Æfingaplönin hennar eru bæði fjölbreytt og krefjandi – enginn dagur er eins. Mæli svo innilega með henni :)“
Rebekka Rut Steinþórsdóttir
„Ég leitaði til Helgu til að undirbúa mig fyrir inntökupróf í lögregluna. Æfingarnar sem hún setti saman voru bæði alhliða og sérsniðnar að því sem prófið krafðist og ég fann gríðarlegan mun á bæði þoli og styrk. Ég náði prófinu með glæsibrag og á það Helgu að þakka. Hún er frábær þjálfari og veit nákvæmlega hvað þarf til að ná árangri!“